Þátttaka Íslandsdeildar á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn
(1609074)
Íslandsdeild Norðurlandaráðs
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
20.09.2016 | 4. fundur Íslandsdeildar Norðurlandaráðs | Þátttaka Íslandsdeildar á Norðurlandaráðsþingi í Kaupmannahöfn Formaður Íslandsdeildar lýsti þeirri skoðun sinni að réttast væri að meðlimir Íslandsdeildarinnar héldu umboði sínu í Norðurlandaráði eftir kosningar, óháð því hvort þeir verða endurkjörnir eða ekki, þangað til ný landsdeild hefði verið skipuð og gætu tekið þátt í Norðurlandaráðsþingi með sama hætti og gert er í Finnlandi. Hann sagði að ef þessi leið yrði farin yrði þátttaka Íslendinga mun öflugri en ef unnið yrði í samræmi núgildandi reglur. Fundurinn lýsti stuðningi við þessa skoðun formannsins og var honum falið að fylgja málinu eftir og beita sér fyrir þeim breytingum sem þarf að gera til þess að þetta verði hægt. |